12.10.1946
Sameinað þing: 2. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1961 í B-deild Alþingistíðinda. (2506)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Félags- og dómsmrh. (Finnur Jónsson) :

Herra forseti. Fyrirspurn þessi á ekki heima hér, þótt vera megi, að hv. 1. þm. Eyf. ætlist til þess, að dómsmrh. geti gefið hér greið svör við þessu. Ég tel, að það væri eðlilegast fyrir þennan hv. þm. að snúa sér til lögfræðings með þetta, sem gæti gefið honum svör við þessari fyrirspurn hans.