17.03.1947
Neðri deild: 97. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1983 í B-deild Alþingistíðinda. (2545)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson) :

Herra forseti. Þessi fyrirspurn hv. þm. S-Þ. ætti helzt að fara til viðskmrh., sem hefur umsjón gjaldeyris. Hins vegar álít ég, að þessi fyrirspurn varði Alþingi og þjóðina í heild, og skal ég sjá um, að þetta verði tekið til athugunar af réttum aðilum, og mun þá upplýsast, hvað stjórnin hyggst fyrir í þessu máli. Meira treysti ég mér ekki að segja á þessu stigi málsins.