09.04.1947
Neðri deild: 108. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1991 í B-deild Alþingistíðinda. (2558)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson) :

Ég hef ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta. Hitt vil ég benda á, að það skiptir í tvö horn um vinnubrögðin hjá því góða blaði, Þjóðviljanum, þar sem það aflar sér upplýsinga út af því, sem eftir Sigurði Guðmundssyni er haft, og breytir svo um föðurnafn, en hefur ekki svo mikið við forsrh. að spyrja, hvort rétt sé eftir honum haft.