04.11.1946
Neðri deild: 10. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 2001 í B-deild Alþingistíðinda. (2588)
Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.
Forseti (BG) :
Út af aths. hv. 1. þm. S-M. skal ég taka fram, að hlutaðeigandi ráðh. hefur verið skrifað og þeim tilkynnt, að fyrirspurnir þessar hafi komið fram, en enn hefur ekki komið svar frá þeim. En forseti mun á næstunni athuga, hvað málunum líður og hvort ekki megi vænta þess, að hæstv. ráðh. séu tilbúnir að svara fyrirspurnunum.