04.12.1946
Efri deild: 28. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 2002 í B-deild Alþingistíðinda. (2590)

Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Þann 16. okt. var vísað til samgmrh. 2 frv., sem ég er flm. að: Frv. á þskj. 6, um breyt. á vegal., og frv. á þskj. 7, um breyt. á brúal. Það hefur nú ekkert heyrzt frá viðkomandi n. um þessi mál, og vildi ég gera þá fyrirspurn til hv. form. n., hvers vænta megi um afgreiðslu þeirra. Það er mikils virði fyrir okkur að vita um það, hvaða afgreiðslu þetta fær í þinginu, með tilliti til afgreiðslu 13. gr. fjárl., og vænti ég að geta fengið greið og góð svör í sambandi við þetta.