17.03.1947
Efri deild: 95. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 2005 í B-deild Alþingistíðinda. (2604)
Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.
Steingrímur Aðalsteinsson:
Ég vil í tilefni af fyrirspurn hv. 1. þm. N-M. geta þess, þar sem formaður n. er ekki viðstaddur, að n. tók málið fyrir og sendi það til umsagnar félmrn. og sambandi byggingarfélaga, og þegar ég fór úr heilbr.- og félmn. vegna mannaskipta, sem þar urðu, hafði hvorugur aðilinn skilað áliti um það, og mun það líklega ekki komið enn þá. Það er ef til vill ekki ástæða til þess að láta málið bíða lengur í n., en frekari upplýsingar get ég ekki gefið, þar sem ég á ekki sæti í n. nú.