07.01.1947
Sameinað þing: 21. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 2050 í B-deild Alþingistíðinda. (2645)

Þingfrestun

forseti (JPálm) :

Þingstörf hefjast nú að nýju, og vil ég bjóða hv. þingmenn velkomna til starfs og óska þeim og starfsmönnum öllum gleði og farsældar á þessu nýja ári og þakka góða samvinnu á liðna árinu.