24.05.1947
Efri deild: 147. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 2050 í B-deild Alþingistíðinda. (2649)

Starfslok deilda

forseti (ÞÞ) :

Nú mun vera komið hér að fundalokum. Þetta mun vera síðasti fundur, sem haldinn verður í þessari d. Um leið og ég þakka dm. ágætt samstarf á þessu lengsta þingi, sem haldið hefur verið, þakka ég þeim þolinmæði við fundarstjórn mína, ef einhverju hefur verið ábótavant.

Ég óska utanbæjarþm. góðrar heimkomu og öllum þm. og fjölskyldum þeirra allrar ánægju á þessu sumri. — Hittumst allir heilir aftur.