12.11.1946
Sameinað þing: 10. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 2018 í B-deild Alþingistíðinda. (2657)

Varamaður tekur þingsæti

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson) :

Nefndin hefur athugað kjörbréf Kjartans J. Jóhannssonar og hefur ekkert við það að athuga, og þar sem honum er úthlutað eina uppbótarvaraþingsæti Sjálfstfl., þá höfum við fjórir nm., sem mættir voru, verið sammála um að mæla með því, að samþ. verði að taka kjörbréf hans gilt. Og leggjum við til, að Kjartan J. Jóhannsson taki sæti hv. 10. landsk., Bjarna Benediktssonar, sem varamaður hans.