10.01.1947
Sameinað þing: 22. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 2019 í B-deild Alþingistíðinda. (2661)

Varamaður tekur þingsæti

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson) :

Herra forseti. Kjörbréfan. hefur athugað kjörbréf Stefáns Stefánssonar frá Fagraskógi og er sammála um, að ekkert sé athugavert að leggja til, að kjörbréfið sé tekið gilt og hann taki þingsæti í stað hv. 2. þm. Eyf. sem varamaður hans. Það eru því eindregin meðmæli kjörbréfanefndar að samþykkja bréfið, og er ekki fleira um það að segja.