12.02.1947
Sameinað þing: 28. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 2020 í B-deild Alþingistíðinda. (2665)

Varamaður tekur þingsæti

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson) :

Herra forseti. Nefndin hefur rannsakað á fundi sínum kjörbréf Arnfinns Jónssonar, og þar eð ekkert athugavert kom í ljós við það, leggur n. til, að þingseta Arnfinns Jónssonar verði samþykkt.