17.05.1947
Sameinað þing: 54. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 2020 í B-deild Alþingistíðinda. (2671)

Varamenn taka þingsæti

Forseti (JPálm) :

Tveir hinna nýju varamanna, sem nú taka sæti á þingi, þeir, dr. Kristinn Guðmundsson og Steindór Steindórsson, eru ókomnir til þings, og mun ég skjóta á fundi síðar í dag til þess að þeir megi undirrita skuldbindingu sína um að halda stjórnarskrána. Hins vegar hafa þau Auður Auðuns og Snorri Jónsson þegar undirritað drengskaparheit um að halda stjórnarskrá landsins, og leyfi ég mér að bjóða þau velkomin til starfsins.