22.05.1947
Sameinað þing: 57. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 2021 í B-deild Alþingistíðinda. (2673)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (JPálm) :

Mér hefur í dag borizt bréf frá hæstv. forseta Nd., er hljóðar svo:

„Reykjavík 22. maí 1947.

Jón Sigurðsson, hv. 2. þm. Skagf., hefur í dag ritað mér á þessa leið :

„Þar sem ég vegna annríkis heima fyrir, m. a. vegna opinberra starfa, verð fjarverandi næstu vikur, óska ég eftir, með skírskotun til 144. gr. l. nr. 80 1942, um kosningar til Alþingis, að varamaður minn, Pétur Hannesson bankaritari, taki sæti mitt á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Forseti neðri deildar.

Garðar Þorsteinsson.“

Hv. kjörbréfanefnd hefur fengið umrætt kjörbréf til athugunar, og mun hv. frsm. nefndarinnar gera grein fyrir niðurstöðu hennar.