10.04.1947
Efri deild: 112. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 91 í B-deild Alþingistíðinda. (283)

221. mál, bifreiðaskattur

Gísli Jónsson:

Herra forseti. — Áður en mál þetta verður afgr. frá þessari hv. d. vil ég gera þá fyrirspurn til ráðh. varðandi c-lið, um 36 kr. skatt á 100 kg, hvort hann hugsi sér, að jeppabifreiðar falli undir þennan lið. Eftir grg. virðist mér sem jeppabifreiðar eigi að falla undir þennan lið og sömuleiðis, að sami tollur verði af jeppabifreiðum og öðrum bílum, en ég vildi þó gjarnan fá umsögn ráðh. um þessi atriði.