17.03.1947
Efri deild: 95. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1700 í B-deild Alþingistíðinda. (2864)

10. mál, útsvör

Forseti (ÞÞ) :

Þar sem þetta mál hefur dregizt svo lengi, tók ég það einu sinni á dagskrá, og var það þá afhent n. aftur, og var þá nál. lofað fljótlega. En það er ekki komið enn, og sé ég mér þá ekki fært annað en að verða við tilmælum hv. þm. Barð. og taka málið á dagskrá, áður en þessi vika líður, hvort sem komið hefur nál. eða ekki.