20.03.1947
Efri deild: 98. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1700 í B-deild Alþingistíðinda. (2869)

10. mál, útsvör

Gísli Jónsson:

Þetta mál hefur legið hér síðan í 10. okt. Það hefur verið margkallað eftir málinu og það hafa verið þrír formenn í n., og hefur hún ekki séð ástæðu til þess að afgreiða málið fyrr en nú, að álit minni hl. kom fram. Nú hefur einn nm. tjáð mér, að hann hafi alls ekki séð málið, og get ég vel fallizt á, að málið sé tekið út af dagskrá, ef form. n. heldur fund og afgreiðir það, og þykir mér ekki ólíklegt, að það sé þá, í fyrsta skipti, sem haldinn er fundur í n. um afgreiðslu þessa máls.