20.03.1947
Efri deild: 98. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1701 í B-deild Alþingistíðinda. (2871)

10. mál, útsvör

Frsm. minni hl. (Hermann Jónasson) :

Ég skal ekki mótmæla þessum fresti, þó að ég viti ekki, hvort hann hefur nokkra þýðingu. En til þess að það liggi ljóst fyrir, að ég sem form. n. er ekki að tefja þetta mál og hef aldrei gert, þá þykir mér rétt að lýsa yfir því, að ég óska eftir að halda fund um málið nú þegar að loknum þessum fundi, því að ég hef ekki tafið þetta mál, hvorki sem form. né nm.