09.05.1947
Neðri deild: 125. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1790 í B-deild Alþingistíðinda. (3051)
71. mál, ræktunarsjóður Íslands
Atvmrh. (Bjarni Ásgeirsson) :
Herra forseti. Ég sagði áðan, að mér hefði verið borið það á brýn, að ég og fleiri hefðum orðið þess valdandi, að frv. náði ekki fram að ganga, vegna þess að við hefðum komið fram með hækkunartill. við það, en ég viðurkenni ekki, að þetta hafi við rök að styðjast, því að það var leikur fyrir meiri hl. að fella þá till. og samþ. frv. eins og þeir vildu, en frv. kom ekki á dagskrá og dagaði uppi.
Hv. þm. A-Húnv. talaði um ósamræmi hjá mér í þessu máli, en miklu frekar mætti segja, að ósamræmis hefði gætt hjá honum, því að á síðasta þingi gat hann ekki verið með hækkun, þótt þá væri ólíkt meiri bjartsýni í peningamálum en nú er. Um samþykkt búnaðarþings er ekkert að segja. Og ekki ræð ég einn samþykktum á þeim þingum, sem ég sit, hvorki hér eða þar, og veit hv. þm. A-Húnv., að hann ræður ekki atkvgr. hér, þótt hann sitji í forsetastóli. En ég vildi að slíkt kæmi fram á búnaðarþingi, hvernig fulltrúarnir litu á þarfir þessa máls, og var það samhljóða mínu áliti. Hitt er svo annað mál, að þrátt fyrir þessa miklu þörf teldi ég ekki ástæðu til að koma þessu máli í gegn, og það er vegna þess, að ekki er hægt að fá samkomulag um meira. En nú vil ég bjóða hv. þm. A-Húnv. eina leið til samkomulags. Það er rétt, að málið gangi til Ed., en ef hann vill koma með samþykki síns flokks, þá lofa ég stuðningi frá mínum flokki, en ég mun ekki brjóta það samkomulag, sem gert hefur verið, og mun ég líka tala um þetta við Alþfl. Ég vænti því, að hæstv. forseti láti málið ganga til Ed.