21.05.1947
Sameinað þing: 56. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1803 í B-deild Alþingistíðinda. (3083)

71. mál, ræktunarsjóður Íslands

Frsm. (Steingrímur Steinþórsson) :

Herra forseti. Hv. Ed. hefur gert lítils háttar breyt. við frv. frá því, sem það var afgr. héðan. Breyt. eru við 8. og 9. gr. frv., og er hvorug þeirra efnisbreyting á ákvæðum frv. Hygg ég, að mér sé óhætt að lýsa því yfir fyrir hönd landbn., þótt þar hafi ekki verið haldinn fundur um málið nú, að hún geti fyrir sitt leyti fallizt á þessar brtt. Mælir hún með því, að frv. verði endanlega samþ. eins og það liggur fyrir á þskj. 905.