22.04.1947
Neðri deild: 117. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1834 í B-deild Alþingistíðinda. (3154)
211. mál, tollskrá o.fl.
Sigfús Sigurhjartarson:
Ég er hv. fjhn. þakklátur fyrir það, að hún hefur viljað ganga til móts við frv. mitt, sem ég áður bar fram sem brtt. við þetta frv. En mér þykir leitt, að n. hefur ekki séð sér fært að ganga lengra. Hv. þm. V-Ísf. lét þess getið, að n. væri ekki mótfallin því að færa tollinn lengra niður, en það hefði ekki verið hægt vegna samanburðar við aðrar vélar. Mín till. er gerð með samanburði við landbúnaðarvélar. Hún stefnir að því, að sami tollur verði á landbúnaðarvélum og heimilisvélum, og er það í samræmi við ályktun sem gerð hefur verið af Kron. Ég veit ekki, hvaða vélar aðrar gætu komið til samanburðar, því að þessar vélar eru til starfsléttis í sveit og við sjó, en ég sé ekki, að um aðrar vélar væri að ræða. Mér þykir gott, að n. hefur viljað taka tillit til heimilisvéla, sem ekki eru knúnar rafmagni, og viljað færa þær til samræmis við aðrar heimilisvélar.
Ég sé ekki ástæðu til annars en að sjá nú þegar vilja hv. þd. og fresta ekki atkvgr. um till. mína, en ég vil benda á það, að með þeim tollahækkunum, sem nú hafa verið samþ., verða 8 aurarnir 10 aurar, og 2 aurarnir ekki 2, heldur 6 aurar, svo að á þessu ári verður ekki um mikla lækkun að ræða. Vænti ég þess svo, að hv. d. sjái, að það er sanngjarnt að bera saman heimilisvélar og landbúnaðarvélar.