11.04.1947
Neðri deild: 111. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 117 í B-deild Alþingistíðinda. (319)
221. mál, bifreiðaskattur
Samgmrh. (Emil Jónsson):
Herra forseti. Hv. 2. þm. Reykv. hefur nú látið í ljós, að til séu aðrar leiðir til fjáröflunar í ríkissjóð en þær, sem ríkisstj. hefur lagt til, að teknar yrðu. Ég vil nú ræða nokkuð þær leiðir, sem hv. 2. þm. Reykv. benti á. Ég get vel fallizt á, að t.d. sú leið, að ríkið taki að sér rekstur langleiða, geti gefið nokkrar tekjur og sé að mörgu leyti æskileg, en sú leið bjargar bara ekki ástandinu nú, því að hún gæfi alls engar tekjur í ríkissjóð á þessu ári, þvert á móti hefði hún í för með sér aukin útgjöld fyrir ríkissjóð, til þess að hægt væri að hefja þennan rekstur. Um þá leið, að ríkið reki viðgerðarverkstæði, vil ég segja það, að ég hef enga trú á, að hún gefi ríkissjóði nokkrar tekjur og það allra sízt nú, þar sem stofnkostnaðurinn við slíkan rekstur mundi verða mjög mikill.
En sú leiðin, sem virðist í fljótu bragði vera aðgengilegust og geta gefið ríkissjóði tekjur nú þegar, er að sjálfsögðu bílainnflutningurinn, en sá galli er bara á þeirri gjöf, að á s.l. ári hefur verið flutt svo mikið inn af bílum. að litið útlit er fyrir, að nokkurt verulegt magn verði flutt inn af þeim á þessu ári. Og það er dálítið einkennilegt, að hv. 2. þm. Reykv. skuli fyrst vera að minnast á þetta nú, eftir að hans flokkur hefur verið í ríkisstj., meðan þessi leið gat gefið tekjur, en þá var ekkert á hana minnzt. En vegna þessa, sem áður er getið í sambandi við þessa leið, held ég, að hún verði ekkert bjargráð nú. Ég tel þess vegna, að engin þessara leiða, sem hv. 2. þm. Reykv. benti á, komi til greina í staðinn fyrir þær till., sem ríkisstj. leggur fram, auk þess sem hann veit, að ekki er meiri hl. á Alþingi fyrir þeim.