22.05.1947
Neðri deild: 138. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1843 í B-deild Alþingistíðinda. (3193)
192. mál, fyrningarsjóður ríkisins
Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson) :
Eins og kunnugt er hafa fyrningar á eignum ríkisins verið færðar til gjalda á rekstrarreikningi ríkisins nú um langt skeið. Hér er það lagt til, að fyrningarupphæðin skuli lögð inn á sérstakan sjóð.
Frv. er samið af fjmrn. og hefur gengið í gegnum Ed. með fylgi fjhn.
Fjhn. Nd. leggur til, að frv, verði samþ. óbreytt.