22.05.1947
Efri deild: 142. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1862 í B-deild Alþingistíðinda. (3255)

247. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum

Frsm. (Guðmundur Í. Guðmundsson) :

Ég get auðvitað ekki lofað neinu um framgang búnaðarmálasjóðsins í Nd., en ég vil taka það fram, að ekki er um neina hugarfarsbreyt. hjá mér að ræða varðandi gjöld til félagasamtaka, því að ég greiddi atkv. með búnaðarmálasjóðnum, svo að það var óþarft fyrir hv. 1. þm. N-M. að beina þessu til mín, ef það hefur verið þannig hugsað.