27.02.1947
Neðri deild: 82. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1881 í B-deild Alþingistíðinda. (3341)
102. mál, ríkisborgararéttur
Jörundur Brynjólfsson:
Ég hef leyft mér að bera frsm brtt. við frv. það er hér um ræðir og er hana að finna á þskj. 441. Það er um að veita Jörgensen, Alfred Christian húsgagnasmið hér í bæ ríkisborgararétt. Hann er fæddur í Danmörku, en fluttist hingað 1929. Það að hann var ekki tekinn með af meiri hl. allshn. stafar af því, að upphaflega var ætlunin að fylgja þeirri reglu að veita aðeins fólki af íslenzkum foreldrum ríkisborgararétt. Nú, en við 2. umr. um frv. var nokkrum fleiri bætt við, sem öðruvísi var ástatt um, og þar með vikið frá hinni upphaflegu reglu. Þegar þannig var komið, sýndist mér ekki hægt annað en verða við ósk þessa manns. Hann á íslenzka konu og uppkomin börn og hefur dvalið hér að staðaldri síðan 1929. Ég þekki ekki manninn, en þeir, sem hann hafa umgengizt, bera honum bezta orð, telja hann góðan þegn, trúverðan starfsmann og háttprúðan. Þar sem hann óskar nú að dvelja hér áfram með fjölskyldu sína, tel ég ekki rétt, úr því sem komið er, að synja honum um ríkisborgararétt. Fyrir þessar sakir ber ég þessa brtt. fram og vænti, að d. fallist á hana. Ég sé svo ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta.