22.05.1947
Efri deild: 142. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1901 í B-deild Alþingistíðinda. (3420)
8. mál, fiskimálasjóður
Björn Kristjánsson :
Eins og frsm. n. gat um og nál. ber með sér, skrifaði ég undir nál. með fyrirvara. Og eins og hann gat um, er þessi fyrirvari viðvíkjandi brtt. á þskj. 976 um það, að í staðinn fyrir, að í frv. er ákveðið lágmarksframlag ríkissjóðs til fiskimálasjóðs 500 þús. kr., leggur meiri hl. til, að það verði allt að einni milljón. Hér er um heimild að ræða, en ekki skyldu. Mér finnst aftur á móti, að það þurfi að tryggja sjóðnum árlegar tekjur, og fellst á, að 500 þús. kr. séu hæfileg upphæð. Mér er að vísu ljóst, að samkv. breyt., sem gerð er á útflutningsgjaldi sjávarafurða, fær hann auknar tekjur, því að síld er gjaldskyld til sjóðsins. En þar sem þessi sjóður hefur svo feikilega mörg og stór verkefni, held ég honum veiti ekki af því, þó að honum væri líka tryggð þessi hálfa milljón úr ríkissjóði, og er þess vegna á móti brtt. n. Hins vegar mun ég, þó að sú brtt. verði samþ., greiða atkv. með frv. Ég sé svo ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þetta og læt máli mínu lokið.