12.05.1947
Neðri deild: 126. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1907 í B-deild Alþingistíðinda. (3448)

120. mál, skattgreiðsla Eimskipafélags Íslands

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Út af þeim orðum, sem síðast féllu í ræðu hæstv. samgmrh., skal ég taka það fram, að ef til þess kæmi, að mál þetta komi undir atkv. í dag í d., mun ég taka till. mína aftur til 3. umr., þannig að hún geti legið prentuð fyrir, þegar hún kemur undir atkv., í þeirri von, að hæstv. ráðh., samkvæmt því sem orð féllu frá honum, vildi taka málið til nánari athugunar.