13.05.1947
Neðri deild: 127. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1908 í B-deild Alþingistíðinda. (3454)

120. mál, skattgreiðsla Eimskipafélags Íslands

Einar Olgeirsson:

Ég er ekki samþykkur því frv., sem hér liggur fyrir. Ef því sú brtt., sem hér liggur fyrir, verður samþ., mun ég ekki síður greiða atkv. á móti því sem heild. En ef frv. verður samþ., álít ég rétt, að útgerð Sambands ísl. samvinnufélaga fylgi með í þessu skattfrelsi, sem hér er um að ræða, og segi því já.