22.05.1947
Efri deild: 142. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1910 í B-deild Alþingistíðinda. (3466)

120. mál, skattgreiðsla Eimskipafélags Íslands

Brynjólfur Bjarnason:

Herra forseti. Ég hef ekki getað orðið sammála meðnm. mínum í þessu máli, því að ég tel enga þörf á að veita Eimskipafélaginu styrk. Auk þess tel ég, ef farið verður inn á þá braut, þá sé engu síður ástæða til að veita hinu nýja félagi S. Í. S. sams konar styrk. Ég mun því greiða atkv. á móti till. meiri hl.