23.05.1947
Neðri deild: 144. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1957 í B-deild Alþingistíðinda. (3646)
148. mál, vatnsveitur
Samgmrh. (Emil Jónsson) :
Þetta frv. er flutt samkv. minni ósk og fer fram á, að hreppsfélögum verði veittur styrkur utan við hið almenna vatnsveitufrv. Þessu frv. var breytt þannig í Ed., að í staðinn fyrir, að það opinbera legði fram styrk til þessara framkvæmda, þá legði það fram vaxtalaust lán. Ég fyrir mitt leyti tel, að frv. nái betur tilgangi sínum, ef það er veitt sem styrkur, en ekki vaxtalaust lán. — Það líður nú að þinglokum, og ef breyt. verða á frv. í þessari hv. d., þarf það að fara aftur til Ed., en ég vildi vona, að um þetta mætti nást samkomulag, þannig að málið þyrfti ekki að daga uppi eða flækjast meira milli d., og legg til, að till. heilbr.- og félmn. verði samþ. óbreytt.