09.12.1946
Efri deild: 30. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 12 í C-deild Alþingistíðinda. (3697)

80. mál, sóknargjöld

Gísli Jónsson:

Ég hefði haldið, að úr því, sem komið er, sé bezt að fresta þessari umr. og n. reyndi að ná samkomulagi um allar brtt., sem fram eru hér komnar. Ég er fús til þess að ræða um að hækka þetta gjald, en ég vil ekki fylgja þeirri efnisbreytingu að láta taka nokkurn hluta gjaldsins eða allt gjaldið sem útsvar. Það mundi vera leið að taka allar till. aftur til 3. umr., en ég hygg betra að fá samkomulag um málið í n., áður en gengið er til atkv. við þessa umr.