04.12.1946
Neðri deild: 32. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 59 í C-deild Alþingistíðinda. (3762)

90. mál, búnaðarmálasjóður

Pétur Ottesen:

Ég sé, að hv. 1. flm. þessa frv. er hér ekki viðstaddur, en mér þykir ekki ástæða til, að málið tefjist fyrir þá sök, enda málið mjög svo kunnugt öllum þm.

Það er aðeins ein breyt. frá því, sem áður gilti, sem felst í þessu, og það er skipting á fénu milli Búnaðarfél. Íslands og stéttarsamtaka bænda. Önnur breyting er ekki á þessu frá því, sem áður var.

Mér þykir ekki ástæða til að reifa málið frekar, og óska ég, að málið gangi til 2. umr. og landbn.