21.02.1947
Neðri deild: 79. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 100 í C-deild Alþingistíðinda. (3797)
17. mál, þingsköp Alþingis
Jón Pálmason:
Herra forseti. Mér þykir ástæða til að segja örfá orð, áður en þetta mál fær endanlega afgreiðslu hér í d. Flm. getur þess, að þetta frv. sé flutt vegna afgreiðslu flugvallarsamningsins í haust.
Ég vil lýsa ánægju minni yfir því, að hv. 4. þm. Reykv. hefur flutt þetta mál, því að með því hefur hann fallizt á, að úrskurður minn í því máli hafi verið réttur. Hitt er svo annað mál, að þetta er vandleyst, þegar svo stendur á sem um þetta mál. Um þál. mega aðeins vera 2 umr., og því erfitt, þegar þarf að útvarpa annarri. Allt öðruvísi stendur á um frv., og þá hefur verið venja að útvarpa 1. eða 3. umr.
Ef svo virðist, að ástæða sé til þess að breyta núgildandi þingsköpum um þetta atriði, þá virðist mér helzt, að það verði að hafa önnur ákvæði um þál. en frv., og ef um frv. hefði verið að ræða, hefði sá ágreiningur aldrei orðið, sem varð í haust.
Hvað því viðvíkur, ef flokkar eru klofnir, þá held ég, að erfitt verði að taka tillit til þess og fyrirbyggja um leið, að ekki sé klofningur hafður að yfirskini, og þá held ég, að það verði erfitt að komast hjá því, að meiri hl. flokksstj. verði að ráða því, hverjir taka til máls við útvarpsumr., því að það yrði erfitt viðfangs, ef flokksmenn færu að deila innbyrðis. Skal ég svo ekki hafa þessi orð fleiri.