27.02.1947
Efri deild: 81. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 143 í C-deild Alþingistíðinda. (3824)

76. mál, iðnskóli í sveitum

Forseti (ÞÞ) :

Þar sem hv. flm. þessa máls vill nú fresta því, en hann ætti að hafa mestan áhuga á framgangi þess, sé ég ekki ástæðu til að ganga á móti þeirri ósk, en samþ. að fresta málinu nú, og þá að líkindum fram yfir helgi, þar eð fundur er fyrirhugaður í Sþ á morgun. Samkvæmt ósk flm. er því umr. um þetta mál frestað og það tekið út af dagskrá.