02.05.1947
Efri deild: 124. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 200 í C-deild Alþingistíðinda. (3919)

143. mál, kvikmyndastofnun ríkisins

Hannibal Valdimarsson:

Þótt ég hefði helzt kosið, að till. hv. 6. landsk. yrði samþ., þá tel ég eftir undirtektunum að dæma, að litlar líkur séu til, að svo verði. En þar sem þessi brtt. stefnir líka í rétta átt, þar sem tekið er upp í hana, að undirbúa skuli löggjöf um kvikmyndastarfsemi á Íslandi, og það er til bóta við dagskrártill., þá segi ég já.