12.04.1947
Efri deild: 115. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 231 í B-deild Alþingistíðinda. (393)

219. mál, hækkun á aðflutningsgjöldum 1947

Forseti (ÞÞ):

Hv. frsm. minni hl. fjhn., 4. landsk. þm. (BrB), hefur tjáð mér, að hann mundi skila vélrituðu nál. Og þar sem nú er verið að enda við að vélrita það og það mun koma eftir tvær eða þrjár mínútur, getur hv. frsm. valið um, hvort hann vill taka til máls strax eða bíða eftir því, sem hann hefur óskað eftir, að nál. verði lesið hér upp. (BrB: Það er kannske ekki rétt að bíða).