09.05.1947
Neðri deild: 125. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 268 í C-deild Alþingistíðinda. (4037)

20. mál, vinnumiðlun

Sigurður Bjarnason:

Herra forseti. Hæstv. forseti hefur nú lýst yfir því, að umr. um þetta mál sé lokið, svo að sjálfsögðu er ekki hægt að fara eftir ósk hv. 4. þm. Reykv. um, að umr. verði tekin upp á ný síðar um málið. Og viðvíkjandi fjarvist hv. þm. Ísaf, vil ég benda á, að það eru liðnar nærri þrjár vikur, síðan 2. umr. lauk um málið, og allan þann tíma hafa bæði hv. þm. Ísaf. og aðrir hv. þm. haft tíma til að hugsa sig um sínar brtt. — Ég óska aðeins, að atkvgr. um þetta mál verið frestað. (HelgJ: Sem lengst.)