27.03.1947
Neðri deild: 103. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 311 í C-deild Alþingistíðinda. (4145)

96. mál, hvíldartími háseta á botnvörpuskipum

Hermann Guðmundsson:

Ég vil beina þeirri ósk til hæstv. forseta, að hann áminni hv. form. sjútvn. um að gæta þeirrar kurteisisreglu að svara fyrirspurn, sem beint er til hans, um mál, er hann hefur til meðferðar, þar sem hann er hér viðstaddur.