26.05.1947
Neðri deild: 141. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 317 í C-deild Alþingistíðinda. (4156)

96. mál, hvíldartími háseta á botnvörpuskipum

Hermann Guðmundsson:

Ég vildi aðeins eindregið lýsa óánægju minni yfir, að hv. forseti skuli enn einu sinni taka þetta mál af dagskrá, eftir að það hefur enn einu sinni verið sett á dagskrána, og það einungis til þess að taka það út af henni aftur.