31.01.1947
Neðri deild: 64. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 277 í B-deild Alþingistíðinda. (439)
47. mál, sauðfjársjúkdómar
Sigurður E. Hlíðar:
Herra forseti. Það er engin sérstök viðkvæmni hjá mér, þótt ég hafi rætt og spurt hér um brtt. á þskj. 305. Það orð, sem samkvæmt því á að koma í staðinn fyrir „sauðfjársjúkdómanefnd“ er ekki yfirlætislaust, þótt hv. flm. brtt. og uppfinningamaður orðsins „sauðfjárvarnastjórn“ vilji bera af sér sakir í því efni, að hann sé ekki að meina það sem hnífstungu til mín. Þetta orð hans heitir sauðfjárvarnastjórn, það stendur hér. Og hvað er hér á ferð, hvað er átt við? Það eru varnir gegn sauðfjársjúkdómum, en svo er orðið „stjórn“. Er ekki með þessu verið að fela nefnd, sem undanfarin ár hefur haft ákveðna sauðfjársjúkdóma með höndum, er ekki verið að fela henni meira hlutverk, alla stjórn þessara mála? Ég segi jú. Nú kemur þessi yfirlætislega till. frá hv. þm. A-Húnv. og segir, að þessir sjúkdómar og meira skuli heyra undir sauðfjárvarnastjórn, og þar með er verið að taka allt sauðfé undan yfirdýralæknisembættinu, það er raunverulega þetta, sem er á ferðinni. Ég gæti farið lagaveginn og heimtað öll yfirráð í þessum málum þegar í stað, ef ég vildi. En þetta hefur allt verið svo mikið „húmbúgg“, að ég vil ekki koma nálægt því. Ég bendi á þetta í allri vinsemd. Ég vil vita, hvar ég stend í þessu. Það eru liðin fjögur ár á morgun, síðan ég tók við þessu embætti. Mér nægir ekki að vera yfirdýralæknir yfir kúm og hestum. Ég vil líka vera yfirdýralæknir yfir sauðfé. Það ætla ég að láta ykkur vita.