23.05.1947
Efri deild: 144. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 429 í C-deild Alþingistíðinda. (4404)

86. mál, landshöfn og fiskiðjuver í Höfn í Hornafirði

Frsm. meiri hl. (Gísli Jónsson):

Herra forseti. Ég geri ráð fyrir, að ekki sé eins mikill áhugi að hlusta á þessar umr. eins og þær, sem hér hafa farið fram, og mun ég því verða við ósk hæstv. forseta og verða mjög stuttorður.

Mér nægir að vísa til hinnar rökst. dagskrár og nál., en meiri hl. n. óskar, að málið verði afgr. á þann veg.