22.05.1947
Efri deild: 142. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 460 í C-deild Alþingistíðinda. (4456)
160. mál, vatnsveita Reykjavíkur
Gísli Jónsson:
Herra forseti. — Ég vil leyfa mér að mótmæla ummælum hæstv. dómsmrh. og tel ósæmilegt, að hann noti slík orð, sem hann viðhafði. Vil ég upplýsa, að ég hafði beðið um samtal við borgarstjóra og hæstv. ráðh. í gær, en þá var áhugi hans ekki meiri en það, að hann vildi ekki ræða málið, þótt hann nú í kvöld hafi fengið svona ákafan áhuga á málinu.