23.05.1947
Efri deild: 143. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 464 í C-deild Alþingistíðinda. (4472)

160. mál, vatnsveita Reykjavíkur

Brynjólfur Bjarnason:

Ég vildi helzt, áður en ég greiði atkv. um afbrigði í þessu máli, spyrja þá hæstv. ráðh., — sem hér eru staddir, hvort þeir vilji ekki sjá til þess, að frv. um vatnsveitur geti komið fyrir í Nd. og verði afgr. Ef þeir vilja lofa því, skal ég ekki hafa neitt á móti því, að málið fái eðlilega afgreiðslu hér.