23.05.1947
Efri deild: 144. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 512 í C-deild Alþingistíðinda. (4548)

242. mál, söngskóli þjóðkirkjunar

Forseti (ÞÞ):

Hv. 1. þm. N-M. hefur afhent mér till. sína, svo hljóðandi:

Í trausti þess, að ríkisstjórnin geri söngmálastjóra mögulegt að stunda kennslu með líkum hætti og verið hefur, með því að útvega honum næsta vetur húsnæði til að kenna í, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá.

Þessi rökst. dagskrá liggur þá jafnframt fyrir til umr.