05.11.1946
Sameinað þing: 7. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 22 í D-deild Alþingistíðinda. (4587)

38. mál, virkjun Andakílsár

Flm. (Pétur Ottesen):

Út af fyrirspurn hv. þm. V-Húnv. get ég upplýst það, að stjórn Andakílsvirkjunar hefur falið Almenna byggingarfélaginu — ég ætla, að það heiti svo —, sem hefur staðið fyrir víðtækum framkvæmdum hér á landi, falið því með sérstökum samningi framkvæmd þessa verks. Þennan samning hef ég að vísu ekki, en skal sjá um, að hann geti legið fyrir þeirri n., sem fær málið til meðferðar, svo að hún og aðrir hv. þm., sem vildu kynna sér málið, eigi þess kost að sjá samninginn.