22.01.1947
Sameinað þing: 24. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 28 í D-deild Alþingistíðinda. (4611)

115. mál, innflutningur nýrra ávaxta

Frsm. (Sigfús Sigurhjartarson):

Herra forseti. — Allshn. hefur athugað þessa till. og fallizt á þær röksemdir, sem fram koma í grg., svo og röksemdir í umr. N. er sammála um að mæla með, að till. verði samþ. og enn fremur vatill. á þskj. 281. Ég sé ekki ástæðu til að endurtaka þau rök, sem áður hafa verið borin fram. Sem sagt, allshn. fellst á og mælir með samþ. þessarar till.