28.02.1947
Efri deild: 82. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 295 í B-deild Alþingistíðinda. (464)

47. mál, sauðfjársjúkdómar

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Það er ekki efnishlið þessa máls, sem ég vildi gera að umtalsefni, heldur orðið tæknifrjóvgun, sem hér á að lögfesta í fyrsta sinn. Hér er um að ræða flutning á sæði, og er því rétt að láta þetta heita tæknisæðingu, því að frjóvgunin gengur sinn gang. hvernig sem sæðingin verður. Um þetta atriði mun ég nú afhenda hæstv. forseta skriflega brtt.