05.05.1947
Sameinað þing: 50. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 93 í D-deild Alþingistíðinda. (4742)

199. mál, siglingarlög og sjómannalög

Frsm. (Finnur Jónsson):

Allshn. hefur athugað þessa till. og leggur til, að hún verði samþ. óbreytt. Ég vil um alla framsögu vísa til grg. Eins og vitað er, eru þessi l., sem hér um ræðir, orðin mjög gömul, en þau voru á sínum tíma sett eftir ýmsum l. á Norðurlöndum. Síðan hafa orðið miklar breyt. á framleiðslu okkar Íslendinga, m.a. á framleiðslu sjávarútvegsins. Ekki er ætlazt til, að skipuð sé í þetta sérstök n., heldur sé ráðuneytinu í sjálfsvald sett, á hvern hátt þessi endurskoðun fer fram.