08.05.1947
Sameinað þing: 51. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 108 í D-deild Alþingistíðinda. (4770)

237. mál, frystihús og fiskiðjuver í Flatey á Breiðafirði

Flm. (Gísli Jónsson):

Herra forseti. — Ég hef leyft mér að bera fram till. til þál. um heimild fyrir ríkisstj. til að ábyrgjast lán fyrir Flateyjarhrepp til að koma upp frystihúsi og fiskiðjuveri í Flatey.

Ég sé ekki ástæðu til þess að ræða þetta mál hér, en vil leyfa mér að vísa til grg., þar sem þetta allt kemur fram, sem upplýst getur verið í sambandi við þetta mál.

Ég óska þess, að málinu verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. fjvn.