16.05.1947
Sameinað þing: 53. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 130 í D-deild Alþingistíðinda. (4822)

252. mál, vantraust á ríkisstjórnina

Páll Zóphóníasson:

Ég tel, að hæstv. ríkisstj. hafi ekki enn haft aðstöðu til að sýna, hvernig hún muni taka á dýrtíðarmálunum og almennri tekjuöflun af stórlöxunum, og í trausti þess, að um það heyri maður frá henni bráðlega, þá geymi ég að taka afstöðu til hennar að þessu sinni og greiði ekki atkv.