16.05.1947
Sameinað þing: 53. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 132 í D-deild Alþingistíðinda. (4827)

252. mál, vantraust á ríkisstjórnina

Jón Pálmason:

Ég var andvígur þessari stjórnarmyndun, þegar hún fór fram, og málefnasamningur ríkisstj. er á margan hátt á móti mínum vilja. En mér er ekki kunnugt um, að neinn undirbúningur hafi átt sér stað varðandi myndun annarrar stjórnar, og tel eðlilegt, að ríkisstj. fái að reyna sig betur en þegar er orðið. Þess vegna segi ég nei.

Þingsályktunartillaga afgreidd með rökstuddri dagskrá.